Ingvar Helgason ehf. leitast við að þjónusta viðskiptavini sína á sem bestan hátt í samráði við verkstæði sem staðsett eru á Reykjavíkursvæðinu sem og víða út um landið. Verkstæðin eru í beinu sambandi við höfuðstöðvar Ingvars Helgasonar þar sem stór varahlutalager er staðsettur. Þar er einnig fáanlegt mikið úrval af aukahlutum í Subaru og Nissan bifreiðar. Hjá Ingvari Helgasyni eru einnig þjónustufulltrúar sem hægt er að hafa samband við ef upp koma vandamál og reyna þeir að leysa málið á skjótan og öruggan hátt.