Saga Ingvars Helgasonar


Tímamót í sögu félagsins


1956
Fyrirtækið Ingvar Helgason hf. var stofnað af hjónunum Ingvari Helgasyni og Sigríði Guðmundsdóttur árið 1956 og markast stofnun fyrirtækisins af ráðningu fyrsta launaða starfsamnnsins.  Fyrirtækið, sem fyrstu árin gekk undir nafninu Bjarkey hf., stundaði innflutning og heildsölu á leikföngum og gjafavöru. 

1962
Ingvar Helgason hf. hóf innflutning  á bifreiðum frá Austur-Þýskalandi árið 1962.  Í upphafi var aðeins um að ræða Trabant en seinna meir var einnig fluttur inn Wartburg frá Austur-Þýskalandi.

1971
Fyrirtækið hóf innflutning á Nissan bifreiðum árið 1971, sem söluaðili danska Nissan umboðsins (þá Datsun).

1976   
Árið 1976 hóf fyrirtækið samstarf við Fuji Heavy Induesties Ltd., framleiðanda Subaru bifreiða og voru fyrstu bílarnir fluttir inn síðla sama ár.  Subaru bílarnir urðu fljótt vinsælir á Íslandi enda fyrstu fjórhjóladrifnu fólksbílarnir sem buðust á markaðnum.

1980   
Er hér var komið sögu var fyrirtækið löngu búið að sprengja utan af sér húsnæðið að Vonarlandi við Sogaveg og keypt var húsnæði Efnablöndunnar að Rauðagerði 27 og reistur sýningarsalur fyrir nýja bíla neðar á sömu lóð.

1982
Ingvar Helgason hf. gerist sjálfstæður umboðsaðili Nissan á Íslandi og innflutningur á Nissan bílum hefst beint frá Japan.

1988   
Enn er svo komið svo að fyrirtækið rúmast ekki lengur í húsnæði sínu.  Byggingarframkvæmdir hefjast við Sævarhöfða í apríl.

1989   
Fyrirtækið flytur starfsemi sína að Sævarhöfða 2 í apríl 1989, réttu ári efitr að framkvæmdir við bygginguna hófust.

1993   
Í ársbyrjun 1993 festi fyrirtækið kaup á rekstri bifreiða- og véladeildar Jötuns hf.  Hófst þá nýr kafli í vaxtarsögu fyrirtækisins.  Í kringum bifreiðainnflutninginn varstofnað nýtt fyrirtæki, Bílheimar ehf., sem annaðist innflutning og sölu á GM – Opel og Isuzu bifreiðum.  Fyrirtækinu var fundinn staður í leiguhúsnæði að Fosshálsi 1 en þegar var farið að huga að stækkun húsnæðisins við Sævarhöfða.

1995   
Á árinu bættist Saab við flóru þeirra tegunda sem Bílheimar ehf. flutti inn og í desember byrjun flutti fyrirtækið í ný húsakynni að Sævarhöfða 2A.

1999   
Ingvar Helgason, annar stofnenda fyrirtækisins fellur frá í september þetta ár.  Við stjórn fyrirtækisins taka synir hans þrír. 

2000
Markaðshlutdeild Ingvars Helgasonar hf. og Bílheima ehf. á fólksbílamarkaðnum nær sögulegu hámarki eða 26,5%

2004 
Fjölskylda Ingvars Helgasonar selur hópi fjárfesta allt hlutafé í fyrirtækjunum tveimur, Ingvari Helgasyni hf. og Bílheimum ehf. og hverfa allir fjölskyldumeðlimir út úr félaginu.  Nýr forstjóri, Kristinn Þór Geirsson er ráðinn til að stjórna rekstri fyrirtækjanna.  Véladeild fyrirtækisins rennur inn í fyrirtækið Jötunn-vélar ehf. á Selfossi og við það eignast Ingvar Helgason hf. hlut í félaginu.  Rekstri félagsins er breitt í einkahlutafélag og fyrirtækin tvö sameinuð undir nafninu Ingvar Helgason ehf.

2005
Ráðist var í viðamiklar breytingar á húsnæði félagsins við Sævarhöfða í apríl þetta ár. Sýningarsalir sameinaðir, stækkaðir og þeim gjörbreytt.  Voru nýju salarkynnin formlega opnuð hinn 15. júlí 2005 og í framhaldinu stendur til að ráðast í enn frekari breytingar á húsnæðinu, m.a. að þrefalda stærð bifreiðaverkstæðisins auk ýmissa annarra breytinga og lagfæringa.

2007
Verkstæðið tilbúið eftir viðamiklar breytingar og er nú eitt það glæsilegasta á landinu. Nú eru allar bílgerðir Ingvars Helgasonar ehf. þjónustaðar á Sævarhöfðanu. Haukur Guðjónsson tekur við sem forstjóri félagsins af Kristni Þór Geirssyni sem tók við starfi stjórnarformanns.

2009
Bifreiðaumboðið B&L ehf. flytur alla starfsemi sína frá Grjóthálsi í húsnæði Ingvars Helgasonar að Sævarhöfða 2. Sömu eigendur eru að báðum félögunum og þetta ein af mörgum hagræðingaraðgerðum sem farið var í vegna kreppunnar sem kom mjög harkalega niður á íslenska bílamarkaðinum.