Verkstæði okkar er vel tækjum búið og annaðst allar þjónustuskoðanir og almennar viðgerðir en auk þess eru framkvæmdar véla- og sjálfskiptingarviðgerðir. Verkstæðið er einnig búið fullkomnum hjólastillingarbúnaði ásamt búnaði til hemla- og demparaprufana.
Við hvetjum þig til að koma með bílinn þinn reglulega í viðhaldsskoðun til okkar því þannig þjónar hann þér best. Einnig má benda á að viðhald skiptir miklu máli varðandi endursöluverð á bílnum.
Okkar nýju bílum fylgir 3ja ára ábyrgð eða upp að 100.000 km akstri, hvort sem kemur fyrst. Til þess að ábyrgðin haldi sér er nauðsynlegt að koma með bílinn til eftirlits og viðhalds árlega og láta smyrja hann á 6 mánaða eða 7.500 km. fresti, hvort sem kemur fyrst.
Starfsmenn móttöku bjóða fría Léttskoðun og ráðgjöf varðandi ástandi bílsins þar sem að þú ert með og færð góða yfir- og undirsýn yfir ástand bílsins. Í framhaldi af skoðun er gerð kostnaðaráætlun og tekinn frá tími sem að hentar báðum aðilum. Nánar um Léttskoðunina hér.
Ef ekki næst að sjá hvað er að bílnum í Léttskoðuninni þá er næsta skref að setja bílinn í hendur þrautþjálfarða aðila sem að sjá um að skoða og greina bilunina. Mikilvægt er að sem bestar upplýsingar komi frá eiganda/notanda til að bilanagreiningin verði markviss og taki sem stystan tíma. Því hvetjum við þig, ef þú þarf á bilanagreiningu að halda, til þess að fylla út eyðublöð sem liggja frammi í móttökunni og eru einni aðgengileg hér á vefnum.
Þegar þú kemur með bílinn þinn í skoðun eða til viðgerðar hjá okkur bjóðum við þér upp á ,,skutluþjónustu" - þ.e. að keyra þig heim eða til vinnu og sækja síðan aftur þegar bíllinn þinn er tilbúinn.
Einnig stendur þér til boða bílaleigubíll á mjög hagstæðum kjörum meðan við þjónustum bílinn þinn. Fyrir þá sem eru mikið á ferðinni er þetta frábært kostur - kynntu þér verð og úrval bílaleigubílann þegar þú pantar tíma hjá okkur.
Reglulegt viðhald er nauðsynlegt til að viðhalda góðu ástandi og mengunar- og vélareiginleikum bílsins þíns. Eigandinn ber ábyrgð á því að bæði almennu og áskildu viðhaldi sé sinnt reglulega eins og mælt er fyrir um.
1. Almennt viðhald felur í sér þá þætti sem skoða þarf við daglegan rekstur ökutækisins. Þeir eru grundvallaratriði í því að ökutækið starfi áfram rétt og eðlilega. Slíkar skoðanir getur þú sjálfur, tæknimaður eða viðurkenndur þjónustuaðili séð um. Sjá nánar um almennt viðhald.
2. Áskilið viðhald er nauðsynlegt að framkvæma til að viðhalda ábyrgð framleiðanda bifreiðarinnar. Áskilið viðhald skal framkvæmt af viðurkenndum þjónustuaðila bílsins. Sjá nánari um áskilið viðhald.
Í daglegum rekstri ökutæksins þarf að sinna reglulegu viðhaldi eins og mælt er með hér fyrir neðan. Geri óvenjuleg hljóð, titringur, hopp, brak, halli, þyngsli, blettir eða lykt vart við sig, skaltu láta kanna það nánar hjá næsta þjónustuaðila eins fljótt og auðið er.
Þegar þú sinnir almennu viðhaldi eða öðrum smáviðgerðum skaltu gæta þess að fara eftir leiðbeiningunum sem þú finnur í kaflanum „Gerðu það sjálfur“ í Eigandahandbók bílsins (Do-it-yourself í Owner’s Manual)
Ytra byrði
Hjólbarðar. Athugaði reglulega loftþrýstinginn með loftmæli á bensínstöð (líka varadekkið) og jafnaðu þrýstingin ef þess er þörf. Athugaðu hvort um nokkrar skemmdir, skurði eða of mikið slit sé að ræða.
Þurrkublöð. Ef þurrkublöðin hreinsa rúðuna ekki fullkomlega skaltu athuga hvort gúmmíin eru sprungin eða slitin.
Hurðir og vélarhlíf. Gakktu reglulega úr skugga um að allar hurðir, vélarhlíf, skottlok/afturhleri virki rétt. Gættu einnig að því að allur lokur læsist tryggilega. Smyrðu læsingar, lamir og liði ef þess er þörf. Athugaðu hvort öryggislæsingin á vélarhlífinni haldi þegar aðallæsingin hefur verið opnuð.
Víxlun hjólbarða. Til að tryggja jafnt slit þarf að víxla hjólbörðum á 10.000 km fresti.
Innanrými Ljós. Athugaðu reglulega hvort aðalljós, afturljós, hemlaljós, stefnuljós og önnur ljós virki eðlilega. Athugaðu líka geislastefnu aðalljósanna.
Viðvörunarljós og -hljóð. Kannaðu hvort öll viðvörunarljós og -hljóð virki eðlilega.
Stýri. Athugaðu breytingar á stýriseiginleikum, t.d. hvort óeðlilegt hlaup sé í stýrinu eða það sé of stíft og hvort óeðlileg hljóð heyrist.
Öryggisbelti. Gakktu úr skugga um að allir hlutar öryggisbeltakerfisins (t.d. sylgjur, festingar, stillibúnaður og forstrekkjarar) virki rétt. Athugaðu hvort efnið í sjálfum beltunum sé nokkuð skorið, trosnað, slitið eða að öðru leyti skemmt.
Rúðuvökvi. Athugaðu hvort nægjanlegur vökvi sé í kútnum.
Kælivökvi vélar. Athugaðu, þegar vélin er köld, hvort nægur kælivökvi sé til staðar.
Vélarolía. Athugaðu magn vélarolíu á meðan bíllinn er á jafnsléttu (og hann ekki í gangi).
Hemlavökvi. Gakktu úr skugga um að hemlavökvinn sé á milli MAX- og MIN-línanna í geyminum.
Rafgeymir. Athugaðu vökvahæð í hverri einingu. Hún á að vera á milli MAX- og MIN-línanna.
Til að viðhalda gæðum bílsins þín er nauðsynlegt að mæta reglulega í smur- og þjónustueftirlit hjá viðurkenndum þjónustuaðila bílsins. Með því kemstu hjá hugsanlegum óþægindum eða jafnvel alvarlegum skemmdum sem geta orsakast af lélegri eða rangri umhirðu. Áskilið viðhald á Nissan, Subaru, Opel, Isuzu og Saab bifreiðum frá Ingvari Helgasyni ehf. er sem hér segir:
(S) Smurþjónusta er fyrst eftir ekna 7.500 km eða 6 mánuði, hvort sem sem fyrr verður. Síðan á milli A og B skoðana eftir hverja ekna 7.500 km eða 6 mánuði frá A eða B skoðun, hvort sem sem fyrr verður.
(A) A skoðun er fyrst eftir ekna 15.000 km eða 1 ár, hvort sem fyrr verður. Síðan á 30.000 km eða 2ja ára fresti, hvort sem fyrr verður.
(B) B skoðun er ítarlegri en A skoðunin og er fyrst eftir ekna 30.000 km eða 2 ár, hvort sem fyrr verður. Síðan á 30.000 km eða 2ja ára fresti, hvort sem fyrr verður
(S) 7.500 km
(A) 15.000 km
(S) 21.500 km
(B) 30.000 km
(S) 37.500 km
(A) 45.000 km
(S) 52.500 km
(B) 60.000 km
(S) 67.500 km
(A) 75.000 km
(S) 82.500 km
(B) 90.000 km
(S) 97.500 km
(A) 105.500 km
o.s.frv.
Til að viðhalda ábyrgð bílsins er einnig mikilvægt að nota varahluti frá framleiðanda bílsins en með því tryggir þú að varahlutirnir samræmist gæðakröfum framleiðandans.