VARAHLUTAVERSLUN


Verslun Ingvars Helgasonar

Verslunin afgreiðir varahluti og aukahluti fyrir bílinn þinn. Við kappkostum að eiga alla algengustu varahluti á lager en sérpöntum einnig alla aðra varahluti frá birgjum okkar í Evrópu og Japan. Afgreiðslutími sérpantana eru í flestum tilfellum fjórir virkir dagar ef varan er til á lager erlendis. Hjá okkur starfa sérhæfðir starfsmenn með víðtæka reynslu og þekkingu á sviði vara- og aukahluta sem tryggja þér ávallt áreiðanlega og persónulega þjónustu. Verslunin er opin frá 8:00-18:00 alla virka daga. Utan opnunartíma er starfrækt neyðarvakt sem gefið er samband við frá aðalnúmeri okkar; 525-8000.


Ný staðsetning

Verslunin hefur fært sig um set og er nú fyrir miðju húsi ásamt verkstæðismóttökunni. Við bjóðum viðskiptavini okkar velkomna í verslunina og viljum vekja athygli á stórbættri og glæsilegri aðstöðu með tölvum, sjónvarpi og kaffihorni.

Hærra þjónustustig

Gerðir hafa verið nýir samningar við birgja og flutningsaðila sem leiðir til þess að biðtími eftir sérpöntuðum varahlutum hefur styst til muna. Einnig hefur varahlutalager verið endurskilgreindur til að tryggja að hefðbundnir varahlutir séu ávallt til á lager.

Gæði varahluta

Það er mikilvægt að nota aðeins viðurkennda varahluti frá framleiðenda bílsins til viðhalds og viðgerða á þínum bíl. Varahlutir frá framleiðanda bílsins eru hannaðir og smíðaðir eftir sömu körfum um gæði og endingu og bíllinn þinn og tryggja þér hámarks öryggi.