Neyðarþjónusta


Bíllinn, eins og önnur mannanna verk getur brugðist, og þá er gott að vita af neyðarþjónustu Ingvars Helgasonar. Neyðarþjónustunni sinnir bakvakt frá varahlutaversluninni og verkstæðinu og þú nærð sambandi við neyðarþjónustuna með því að hringa í aðalsímanúmer okkar: 525 8000.

Varahlutaverslun

Ef þörf er á varahlut utan hefðbundins opnunartíma verslunarinnar getur þú kallað út afgreiðslumann en athugaðu að útkallið kostar 8.000 kr.

Verkstæði

Þar sem um neyðarþjónustu er að ræða, getum við ekki lofað þér fullri verkstæðisþjónustu en fyrst þarf að greina símleiðis umfang og eðli vandans.

Ef bilunin reynist umfangsmikil stendur þér til boða bíll frá Bílaleigu IH á afar hagstæðum kjörum. Ef kalla þarf út viðgerðarmann kostar útkallið 8.000 kr. og greitt er síðan fyrir viðgerðina samkv. verðskrá.

Ef um er að ræða bíl í ábyrgð þá er neyðarþjónustan bíleiganda að kostnaðarlausu að uppfylltum skilyrðum ábyrgðarinnar.

Nissan vegaaðstoð

Nissan býður öllum eigendum Nissan bíla sem nýskráðir eru eftir 1. maí 2008 24 tíma vegaþjónustu, 365 daga á ári. Nissan vegaaðstoðin er viðbót við hefðbundna ábyrgðarskilmála og er eigandanum að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar um þessa vegaaðstoð er að finna í handbók þeirra bíla sem við á.