Hér er gildandi ábyrgðarákvæðum lýst í stuttu máli með dæmigerðum svörum við helstu spurningum sem vaknað geta vegna ábyrgðar og ábyrgðarskilmála. Við vekjum þó athygli á því að hér er þó einungis fjallað um ábyrgðina í stórum dráttum og að nánari upplýsingar er að finna í þjónustu- og ábyrgðarbók bílsins og gildir hún ef upplýsingar eru misvísandi.
Almennt um ábyrgðir og ábyrgðarskilmála
Þriggja ára ábyrgð á lakki
Leiðbeiningar um umönnun bílsins
Ábyrgð vegna gegnumtæringar
Að snúa sér til verkstæðis með bótakröfu
Almennt um ábyrgðir og ábyrgðarskilmála
Spurning: Hve lengi gildir ábyrgðin á nýja bílnum mínum?
Ábyrgðin gildir í 3 ár eða fyrstu 100.000 kílómetrana hvort sem kemur fyrr frá nýskráningardegi.
Spurning: Á ég að láta framkvæma þjónustueftirlit á nýja bílnum mínum?
Við mælum með því að þjónusta sé framkvæmd á viðurkenndu verkstæði í samræmi við fyrirmæli framleiðanda sem fram kemur í þjónustubók bílsins.
Spurning: Hefur það áhrif á ábyrgðina ef bíllinn fer ekki í þjónustueftirlit?
Geti Ingvar Helgason ehf. sýnt fram á að rekja megi galla eða verra ástand til þess að ekki var staðið við kröfur um eftirlit og viðhald á bílnum hefur Ingvar Helgason ehf. rétt til þess að neita þér um bætur samkvæmt ábyrgðarskilmálum.
Spurning: Á að framkvæma alla þjónustu á viðurkenndu þjónustuverkstæði?
Öll þjónustuverkstæði okkar njóta nauðsynlegs stuðnings sem byggist á tengslum við stórt samskiptanet. Þar er einnig til staðar sérfræðiþekking vegna þess að starfsfólkið hefur hlotið þjálfun og hefur auk þess aðgang að nauðsynlegum sérverkfærum. Þess vegna mælum við með því að þjónusta sé veitt á viðurkenndu þjónustuverkstæði.
Spurning: Eru gerðar einhverjar sérstakar kröfur til mín sem eiganda ef ég kýs að setja bíl minn á annað verkstæði en viðurkennt þjónustuverkstæði?
Já, þú þarft að ganga úr skugga um að verkstæðið uppfylli þær gæðakröfur sem krafist er við þjónustu samkvæmt fyrirmælum framleiðanda og að nauðsynleg verkfæri séu fyrir hendi á verkstæðinu. Við þjónustueftirlit er farið yfir öryggisbúnað bílsins og þá er þörf fyrir sérstakan mælibúnað. Þú þarft einnig að ganga úr skugga um að verkstæðið vinni samkvæmt sérstökum og sértækum eftirlitsáætlunum Ingvars Helgasonar ehf. sem eru í tengslum við þjónustueftirlitið.
Spurning: Verð ég að geta lagt fram skjöl þess efnis að bíllinn hafi fengið þjónustu?
Já, sé lögð fram bótakrafa verður þú að gæta þess að veitt þjónusta sé staðfest með stimpli í þjónustubók bílsins og reikningi sem staðfestir viðskiptin. Þetta gildir bæði um þjónustu sem veitt er hjá viðurkenndu þjónustuverkstæði og hjá öðru til þess bæru verkstæði, ef vill.
Spurning: Má nota aðra varahluti en merkta (original) framleiðanda til viðhalds á bíl mínum?
Já. Þó verður að ganga úr skugga um að gæði varahlutanna séu sambærileg við gæði varahluta sem seldir eru undir vörumerkjum framleiðanda bílsins.
Spurning: Nær ábyrgð framleiðenda til annarra varahluta en þeirra sem seldir eru undir þeirra vörumerkjum og þar með viðurkennir af þeim?
Nei. Seljandi varahlutanna ber alla ábyrgð á öðrum varahlutum en þeim sem framleiðandinn viðurkennir.
Spurning: Getur ábyrgð framleiðenda fallið niður við notkun á öðrum varahlutum en þeim sem hann viðurkennir?
Já. Sé hægt að sýna fram á að utanaðkomandi varahlutur orsaki galla eða verra, nær ábyrgð framleiðanda ekki til þessa. Við þær aðstæður þarft þú sjálf(ur) að gera kröfu á verkstæðið sem setti viðkomandi varahlut í eða á þann sem seldi varahlutinn.
Spurning: Nær ábyrgðin til kostnaðar við lánsbíl á meðan minn bíll er á verkstæði?
Nei.
Þriggja ára ábyrgð á lakki
Spurning: Hve lengi gildir ábyrgðin á lakkinu á nýja bílnum mínum?
Það er þriggja ára ábyrgð á lakkinu, óháð því hve mikið bílnum er ekið.
Spurning: Til hvaða þátta nær lakkábyrgðin?
Þriggja ára ábyrgð á lakki nær til galla í efni eða framleiðslu á lökkuðum ytri flötum bílsins.
Spurning: Þarf að framkvæma reglubundið eftirlit á viðurkenndu verkstæði til þess að ábyrgðin haldist?
Nei, ekki er haft eftirlit með lakkinu.
Spurning: Á ég að gæta að lakkinu sjálf(ur)?
Já, þú átt að fara eftir þeim leiðbeiningum sem gefnar eru í þjónustubók bílsins.
Leiðbeiningar um umönnun bílsins
Spurning: Getur ábyrgð á lakki fallið niður?
Já, ef þú gerir bótakröfur vegna galla sem kom fram eða sem versnaði vegna skorts á viðhaldi eða vegna eldri og ófullnægjandi viðgerðar.
Spurning: Ber mér skylda til að láta laga mögulegar skemmdir á lakkinu?
Já. Gera þarf án tafar við skemmdir á viðurkenndu verkstæði eigi ábyrgð á lakki að gilda áfram um þann eða þá hluta sem urðu fyrir tjóni.
Spurning: Hvernig legg ég fram kvörtun vegna lakkskemmda?
Þú snýrð þér til viðurkennds þjónustuverkstæðis sem lætur útbúa beiðni um ábyrgðarbætur. Ingvar Helgason ehf. metur svo bótakröfuna og tilkynnir verkstæðinu um niðurstöðu sína.
Spurning: Nær ábyrgðin til kostnaðar við lánsbíl á meðan minn bíll er á verkstæði?
Nei.
Ábyrgð vegna gegnumtæringar
Spurning: Hve lengi gildir ábyrgð vegna gegnumtæringar á nýja bílnum mínum?
Um er að ræða 6 til 12 ára ábyrgð vegna gegnumtæringar, burtséð frá fjölda kílómetra, allt eftir því hvaða bílgerð þú hefur keypt. Í kaflanum „Yfirlit yfir ábyrgðarskyldu“ í þjónustubókinni er að finna upplýsingar um hverja gerð fyrir sig.
Spurning: Til hvaða þátta nær ábyrgð vegna gegumntæringar?
Gegnumtæringarábyrgð framleiðanda nær til allra ytri hluta yfirbyggingar sem hafa gegnumtærst innan frá vegna ryðs.
Spurning: Þarf bíllinn að fara í reglubundið eftirlit á viðurkenndu þjónustuverkstæði svo ábyrgðin sé gild?
Já, skoða skal bílinn einu sinni á ári hjá viðurkenndu þjónustuverkstæði.
Spurning: Er eftirlitið ókeypis?
Já. Til þess er þó ætlast að bæði bílhús og undirvagn séu hrein. Sé ekki svo getur verkstæðið látið þvo bílinn á kostnað eiganda.
Spurning: Getur ábyrgð vegna gegnumtæringar á bíl mínum fallið niður?
Já, sé um að ræða bótakröfu vegna galla sem kemur fram, eða er í verra ástandi en annars, vegna skorts á eftirliti, ónógu viðhaldi eða vegna ófullnægjandi fyrri viðgerðar.
Spurning: Ber mér skylda til að láta lagfæra mögulegt tjón?
Já. Ef gegnumtæringarábyrgðin á að halda áfram að gilda á þeim hluta eða hlutum sem orðið hafa fyrir tjóni verður að láta viðurkennt verkstæði lagfæra tjónið umsvifalaust.
Spurning: Er ég skyldug(ur) til að láta lagfæra mögulegt tjón, þar með talið tjón sem verður í akstri, á viðurkenndu verkstæði?
Nei, en eigandi verður að geta lagt fram sundurliðaða skriflega staðfestingu á öllum viðgerðum sem framkvæmdar hafa verið, til dæmis reikning, skýrslu matsmanns eða sambærileg gögn sé bótakrafa lögð fram.
Spurning: Hvernig legg ég fram bótakröfu vegna gegnumtæringar sem kemur innan frá?
Þú snýrð þér til viðurkennds þjónustuverkstæðis sem lætur útbúa beiðni um ábyrgðarbætur. Ingvar Helgason ehf. metur svo bótakröfuna og tilkynnir verkstæðinu um niðurstöðu sína.
Spurning: Nær ábyrgðin til kostnaðar við lánsbíl á meðan minn bíll er á verkstæði?
Nei.
Að snúa sér til verkstæðis með bótakröfu
Spurning: Hvenær legg ég fram bótakröfu vegna galla?
Leiki grunur á að um galla sé að ræða skaltu undir öllum kringumstæðum strax hafa samband við viðurkennt þjónustuverkstæði. Á verkstæðinu er skorið úr um hvort ábyrgð framleiðanda nái til viðkomandi galla.
Spurning: Hvernig legg ég fram bótakröfu vegna galla?
Best er að hringja í viðurkennt verkstæði og panta tíma í samráði við verkstæðismóttöku. Hafðu öll gögn um bílinn við höndina til þess að tryggja örugga og hraða afgreiðslu.
Spurning: Gilda sömu reglur erlendis?
Já. Þú gætir þó þurft að leggja út fyrir kostnaði sem fæst endurgreiddur þegar þú kemur til landsins á ný. Strax eftir heimkomu skaltu hafa samband við Ingvar Helgason ehf. Nái ábyrgðin til gallans þannig að bótakrafan sé réttmæt færð þú upphæðina endurgreidda hjá Ingvari Helgasyni ehf.