Uppítökur


Hafa ber í huga nokkra mikilvæga þætti þegar bifreið er tekin uppí kaup á nýrri.

Söluskoðun
Söluskoðun er unnin af starfsmönnum okkar. Tilgangur hennar er að meta ástand ökutækis og finna rétt verð hennar. Það er réttur eiganda bifreiðar að fá óháðan aðila til að söluskoða hann. Söluskoðun sem framkvæmd er af Ingvari Helgasyni ehf. er eign fyrirtækisins.

Áhvílandi lán
Gera þarf grein fyrir þeim lánum sem hvíla á notuðum bíl þegar hann er settur upp í nýjan. Algengustu áhvílandi lánin eru bílalán en hægt er að flytja þau á milli bíla eða sameina nýju láni. Ef önnur veðbönd en bílalán eru áhvílandi þarf seljandi að losa þau áður en hægt er að taka bílinn uppí sem greiðslu.

Veðflutningur - lán flutt á milli
Ef lántaki óskar eftir að flytja núverandi bílalán á milli bíla þarf verðmæti nýja bílsins að vera nægjanlegt til að tryggja að veðhlutfall haldist. Kaupandi ber sjálfur kostnað af veðflutningnum ef eftirstöðvar lánsins gefa til kynna að lánshlutfallið sé ásættanlegt.

Sameiningarlán - eldra lán sameinað nýju við kaup á dýrari bifreið
Hentar vel þegar einstaklingur á bíl með áhvílandi bílaláni, vill kaupa nýjan og þarf til þess viðbótar fjármagn. Þá er eldri skuldin og viðbótin sameinuð í nýtt lán. Forsenda þessara lána er að eldra lánið og það nýja tilheyri sama fjármögnunarfyrirtæki.