Samkvæmt umferðarlögum skulu öll skráningarskyld vélknúin ökutæki tryggð með ábyrgðartryggingu ökutækis og slysatryggingu ökumanns og eiganda. Þetta eru skyldutryggingar og hvílir vátryggingarskyldan á eiganda ökutækisins eða þeim sem hefur varanleg umráð þess. Auk þessara lögboðnu trygginga tengjast framrúðutrygging og kaskótryggingar bílnum.
Þegar rætt er almennt um iðgjald ökutækjatrygginga er það venjulega samsett iðgjald lögboðinnar ábyrgðartryggingar, slysatryggingar ökumanns og eiganda og einnig framrúðutryggingar.
Ábyrgðartrygging ökutækis bætir fjárhagslegt tjón, bæði eigna- og líkamstjón, sem ökumaður veldur öðrum með notkun ökutækis. Vátryggingin bætir ekki tjón á ökutæki þess aðila sem veldur tjóninu.
Slysatrygging ökumanns og eiganda gildir fyrir ökumann og eiganda ef hann er farþegi í eigin ökutæki. Ef ökumaður lendir í árekstri og er „í rétti“ fær hann tjón sitt bætt úr ábyrgðartryggingu mótaðilans, hvort sem um muna- eða líkamstjón er að ræða. Ef hann er hins vegar í „órétti“ fær hann líkamstjón sitt bætt úr eigin tryggingu. Farþegar sem verða fyrir tjóni fá bætur úr ábyrgðartryggingu þess aðila sem er í órétti.
Framrúðutrygging er frjáls vátrygging sem almennt er keypt með ábyrgðartryggingu bifreiðar. Hún bætir brot á framrúðu bifreiðar ásamt ísetningarkostnaði.
Kaskótryggingar eru frjálsar vátryggingar sem bæta eignatjón á ökutækjum þegar eigandi/ökumaður á sjálfur sök á óhappinu eða verður fyrir utanaðkomandi, bótaskyldu tjóni sem veldur skemmdum á ökutækinu.