Fjármögnun


Til eru nokkrar leiðir til að fjármagna draumabílinn. Algengast er að fólk velji bílalán og bílasamning en þó eru aðrar leiðir færar í þessum efnum. Sölumenn okkar geta gefið ýtarlegar upplýsingar um þær fjármögnunarleiðir sem í boði eru:

Bílalán
Fjármögnunarfyrirtæki veitir lán fyrir bílakaupunum og viðskiptavinur er skráður eigandi bílsins. Sem tryggingu fyrir láninu hefur fjármögnunarfyrirtækið fyrsta veðrétt í bílnum.Veitt er 70% lán til allt að 7 ára fyrir nýjan bíl. Hægt er að greiða inn á lánið eða greiða það upp hvenær sem er. 

Bílasamningur
Þegar gerður er bílasamningur kaupir fjármögnunarfyrirtækið bílinn en viðskiptavinurinn er umráðamaður hans og eignast bílinn í lok samningsinstímabilsins. Bílasamningur hefur þann kost að viðskiptavinurinn greiðir jafna upphæð út tímabilið. Hægt er að fá lán fyrir allt að 70% af kaupverði bifreiðarinnar. Bílasamningur getur gilt til allt að 7 ára við kaup á nýjum bíl. Við kaup á notuðum bíl getur samanlagður samningstími og aldur bíls verið allt að 7 árum.

Hér finnur þú reiknivélar fjármögnunarfélaganna og getur reiknað út mismunandi möguleika