Note er til í tveimur mismunandi gerðum Visia og Tekna. Í Visia gerðinni er m.a. afl- og veltistýri, loftpúðar fyrir ökumann og farþega, fjarstýrðar samlæsingar, NATS ræsivörn (þjófavörn), rafmagn í rúðum og speglum, útvarp og geislaspilari, 3ja punkta öryggisbelti í öllum sætum, ISOfix barnabílstólafetingar, ABS hemlar og fleira. Auk þessa er í Tekna gerðinni: útvarpsstillingar í stýri, samlitir stuðarar, 6 diska geislaspilari, álfelgur, Bluetooth (þráðlaus símasvörun), loftkæling, ESP skriðvörn ofl.