Nissan Pathfinder er til í þremur mismunandi gerðum XE, SE og LE. XE gerðin er m.a. búin ESP stöðugleikastýringu, ABS hemlum, tvöfaldri loftkælingu, gardínuloftpúðum, ISOfix barnabílstólafestingum, 17” álfelgum. SE gerðin er auk þess búin Bluetooth (þráðlaus símasvörun), sjö sætum, þokuljósum í stuðara, krómuðu grilli, regnskynjara á rúðuþurrkum, áttavita í baksýnisspegli, leðurstýri, hita í speglum, 6 diska geislaspilara. LE gerðin er auk þess búin rafstýrðum leðursætum, Xenon aðalljósum, stigbretti, MP3 spilara, bakkmyndavél, stillingaminni á sætum og speglum, BOSE hljómtækjum, sóllúgu DVD leiðsögukerfi.