Nissan Navara er einn best útbúni fjórhjóladrifni pallbíllinn sem fáanlegur er á markaðnum. Hann hefur hærri sessur framsæta en flestir pallbílar í sínum stærðarflokki , nærri 2ja metra langan pall með stillanlegum festibrautum. Navara er rúmgóður 5 manna pallbíll með niðurfellanleg 60/40 aftursæti og farangursgeymslu undir aftursætum.